|
09.11.2007 04:49:33 / Stikill/Ingi Heiðmar Jónsson
Vertu velkominn á nýtt ritl . sjá veffang hér að neðan.
»
08.11.2007 06:30:02 / Stikill/Ingi Heiðmar Jónsson
Ég þakka fjölmörgum gestum komuna og þessa einkennilegu en ánægjulegu samveru sem ritlsamskipti eru og býð þeim að heimsækja mig áfram á nýrri síðu. Ég nefndi, fyrir nokkrum dögum, stuðningsmenn mína við upphaf ritls, þá Eyjólf Sturlaugsson og Kristján Eiríksson og hef ekki gleymt því að þeirra hvatningu þurfti ég til að hefjast handa. Vertu velkomin að nýjum Stikli, nýrri síðu. Þar mun ég ritla áfram, sjá veffangið hér að neðan. (Breytti blogg í ritl 21. maí 2008 IHJ) http://ihjstikill.blogcentral.is/
Viðbót 8/11 kl. 19.40 Búinn er ég að græða vísu á bloggflutningunum, Guðm. í Hraungerði sendi mér versið hér að neðan sem ég vel þakka og opinbera hér á gamlabloggi: Þeysir bloggsins víðu velli, vandar málið best. Heyrði árlangt skeiðsins skelli, - nú skiptir ann um hest. GSt.
»
07.11.2007 09:18:07 / Stikill/Ingi Heiðmar Jónsson
að stökusmið okkar í dag: Tíðarfarið í Loðmundarfirði í marsmánuði 1897Utan af hafi og inn á Tóæðir sérhver bára og nú hefur drifið niður snjó nóg til hundrað ára..Hafskipum er hátt á loft hvössum lyft af vindum svo Flandarar hér finnast oft fullir uppi á tindum. PÓ Tó er fjallvegur úr Loðmundarfirði til Fljótsdalshéraðs. .Frönsk fiskidugga strandaði fjarri bæjum; menn komust á land en villtust í þokunni og upp í fjall og komu því ofan úr fjalli til bæja. Höf. bókarformála: Sigurborg Hilmarsdóttir
»
07.11.2007 07:48:20 / Stikill/Ingi Heiðmar Jónsson
var ég að hugsa í morgun þar sem ég rölti með Mbl., 24, og 2 DVblöð í umboði MFG frænda míns sem var á öðru rölti með sömu hreyfingar við lúgur og garðshlið um sexleytið í morgun. Mjólkurbílstjórar þurftu að vakna snemma til að vera komnir snemma fram í dali og að taka mjólkina af brúsapallinum, sjá við hríðum og ófærð og kannski að muna eitt og annað af erindum. Einhvers staðar hefur bílstjórum og póstum líklega verið haldin árshátíð og fyrsti mjólkurbílstjóri sem ég man eftir var í hreppsnefndinni. Það var Bóas í Bólstaðarhlíð, sem átti mjólkurbílinn sjálfur, hóf ferðina fram í dal og kom heim að kvöldi með tóma mjólkurbrúsa og úttekt fyrir ýmsa.
»
06.11.2007 08:26:12 / Stikill/Ingi Heiðmar Jónsson
er ekki allt í stuðlum: . Þeir berhausuðuÞeir hafa ekki neinar húfuren hitt geta allir séð að guð hefir gefið þeim hausinn til að kinka kolli með. KN Mér sýndist skáldið vera að minna okkur á að bjóða góðan daginn. Opnum aðeins fyrir Páli: Allar nætur yrki ég. Ógn er vísnagrúinn.Óðar en ég andann dreg oft er vísan búin. PÓ
»
06.11.2007 07:38:54 / Stikill/Ingi Heiðmar Jónsson
til að ræða um hrúta og AHÓ var að minna mig á mitt góða hrútakyn sem ættað er frá Gýgjarhólskoti og hefur staðið árlangt uppi í hillu, kannski má fara að hleypa þeim niður á borð. Hannes Pétursson hafði bústað í Laugarbólshúsinu norður á Steinsstöðum fyrir mörgum árum og naut þar sumars og umhverfis. Þá komu Reykjahrútarnir stundum til að líta á sprettuna Steinsstaðamegin og gengu þar í einfaldri röð, líklega hefur það verið virðingarröð. HP lét þá hafa vísu: Glaðbeittir með hnoð og hnus hengslast um með góðleg fés hrútar mínir: Matteus Markús, Lúkas, Jóhannes. HPSkrifa þetta eftir minni, en er sérstaklega óöruggur með fyrsta orð vísunnar.
»
06.11.2007 06:28:36 / Stikill/Ingi Heiðmar Jónsson
sem verður á fimmtudaginn og koma mér þá í hug Eyjólfur og Kristján, annar er skólastjórinn minn en hinn skólafélagi frá árinu 1962 þegar við sátum báðir í 3. bekk MA og miðluðum milli okkar sögum úr heimabyggðum okkar, hann af Reykjaströnd en ég úr Blöndudal og svo var hann mér mun fremri í að smíða stökur. Það hefur mér löngum þótt heillandi viðfangsefni sem öllum stendur til boða. Nú hittumst við KrE ekki mánuðum saman en við getum sést á síðunum okkar – og margir fleiri. Þessir félagar mínir, Eyjólfur og Kristján hvöttu mig til að setja upp síðu og hún hefur orðið mér árátta, áskorun og félagsskapur þó þögul sé. Frá síðunni kemur hvorki hrós né hnuss fyrr en einhver gestur setur sín orð í gestagluggann. http://loi.blog.is/blog/loi/day/2007/11/4/ http://blog.central.is/kriseir Ekki má ég sleppa að nefna þann ávinning af þessum síðuskrifum mínum að skætingur og klíningur viðmælanda og vina minna sem angruðu mig með meira móti fyrir ári síðan gera það sáralítið eftir þetta ár. Viss er ég líka um að það að manns eigið hnuss yfir ýmsu fráleitu í kringum mann það dofnar þegar alltaf er hægt að tjá hug sinn, ekki þarf að geyma það með sjálfum sér, svo gusast það kannski yfir manns besta vin af því hann leit inn á erfiðri stundu eða maður hitti hann á götuhorni.
»
05.11.2007 21:37:45 / Stikill/Ingi Heiðmar Jónsson
minnist Guðmundur í Hraungerði fallega á bloggsíðu sinni en nafna kölluðu þeir hvor annan alla jafnan: http://blog.central.is/gummiste?page=news
»
05.11.2007 14:15:26 / Stikill/Ingi Heiðmar Jónsson
voru listaverk Katalóníumannsins og arkitektsins Antoni Gaudís, höllin Familia Sakrada og fimmtán hektara garður sem við gengum um í gær. Hann er í allbrattri hlíð, kostaður af ríkismanni, en Gaudi sagði fyrir. http://www.gaudiallgaudi.com/AA010.htm Það er ótrúlegt að ganga um þetta, hrærast með öllum mannfjöldanum sem þar gengur um tímum saman, gleymir sér í formum, litum og línum og andrúmsloftið dregur allt dám af þessu:
»
05.11.2007 12:30:40 / Stikill/Ingi Heiðmar Jónsson
Sveinbjarnar Beinteinsson er ein af öndvegisbókum vísnagrúskara. Í henni eru vísur frá 1400-1900. Hér gamall húsgangur: Illa liggur á honum Kút ekki er á ferðum gaman þegar hann býr við þunga sút þá er hann svona í framan..Nú er bágt að bjarga sér bilar mátt í leynum svarta nátt að sjónum ber segir fátt af einum. Jón Árnason VíðimýriNú er lítið vísnaval verður fátt um gaman. Kalt er veður á Kaldadal kólnar oss í framan.Jón Pálsson Vídalín
»
05.11.2007 10:25:44 / Stikill/Ingi Heiðmar Jónsson
kallast á fyrir sumum og þó ekki væri vetrarlegt suður í Barcelona fór ég velta fyrir mér sem ég sat þar í sólinni hvernig verið hefði að vakna upp eftir Örlygsstaðabardaga, þ. e. fyrir þá sem lífi héldu og limum. Kafli 139 í Íslendingasögu hefst svo: „Sunnudaginn(22. ágúst) fóru flestir menn braut úr Skagafirði þeir sem færir voru fyrir sárum. Voru þá enn vestanmenn flettir á bökkum Jökulsár af fylgdarmönnum Kolbeins en sumir voru barðir. Mundu þeir hafa fengið hinar mestu hrakningar ef eigi hefði Þorsteinn Jónsson og Vatnsdælir hólpit þeim. Var Kolbeinn í öllu snarpari en Gizur eftir fundinn.“ Fréttist af spurningaþættinum, heitir hann ekki Útsvar, að þar hefði verið leitað í Sturlungu eftir spurningum.
»
05.11.2007 06:16:23 / Stikill/Ingi Heiðmar Jónsson
komum við um miðnætti, bíllinn beið okkar í Hf. og leiðin austur og heim á Selfoss gekk greitt. Jón heitinn í Ártúnum skemmti sér oft við að fara með eftirfarandi Káinsvísu sem Káinn kallar hringhenda hlunkhendu: Það sem ég meina, sérðu, sko! –vera ekki að neinu rugli; bara að reyna að drepa tvo steina með einum fugli. KN
»
04.11.2007 09:56:28 / Stikill/Ingi Heiðmar Jónsson
Gódan dag sídugestir. Thetta skrifa ég í Barcelona thar sem ég hef verid fylgihnottur frúarinnar í árshátídàrferd VGK-Honnunar. Hér er alltaf sól en hitinn sem betur fer innan vid 20 stig á Celsíus. Káinn kom med mér í ferdina en thví midur getur hann ekki ávarpad gesti sidunnar ad sinni tví hann vard eftir uppi á herbergi. Vid heimsottum hollina sakrada familia i fyrradag og sidan hefur Gaudi átt hug okkar og rádgert er ad taka ser far thangad med leigubíl seinna í dag. Rutan a flugvollinn fer svo 16.30 enda ekki gert rad fyrir ad koma heim til Keflavíkur fyrr en upp úr midnaetti.
»
01.11.2007 08:37:46 / Stikill/Ingi Heiðmar Jónsson
Til skálds .Sittu heill á Bragarbekkbættu landans skáldasmekk leiktu þér eins og lamb á stekk leystu andans þrældómshlekk..Enginn veit hvað í þér býr andans sjón er hvöss og skýr. En gæfan þig á flugi flýr -fyrir það máttu passa kýr. KN
»
01.11.2007 05:50:57 / Stikill/Ingi Heiðmar Jónsson
úti í sínum eigin garði við straumanið elfunnar gráu, hafði gaffal í hendi og snjallyrði á vörum, kuldablástur var í trjátoppum en þrastasöngur í greinum. Þeir Magnús Gunnarsson höfðu ekki hist fyrri svo Skotland og Suðureyjar urðu til umræðu þá litlu stund er við stóðum við, en merkast var þó frá þessu sumri að ÞV sótti heim Manarþing og sá nokkuð til þeirra 80 þúsunda er þar búa á eyju sem jafnstór er Flóa og Skeiðum. Ester Rut Unnsteinsdóttir er að verða doktor í atferli hagamúsarinnar en íslenska hagamúsin er komin af skógarmúsum, kom hingað með landnámsmönnum og átti ekki afturkvæmt: http://www.visir.is/article/20071101/FRETTIR01/111010222 Bjórsala í matvörubúðum? Skoðanakönnun á Strandir.is http://www.strandir.is/ "Gefið okkur álver eða olíuhreinsistöð svo við þurfum ekki að hugsa sjálf" Af síðu Sig. Atlasonar: http://sigatlas.blog.is/blog/sigatlas/
Það var gaman í Barnaskólanum á Stóra-Fjarðarhorni: http://galdranorn.blogspot.com/
»
Síður: 1 2 3 ... 82
|